Þú greiðir fyrir hvern fasteignasala, ekki hverja auglýsingu.

Nágranni býr til faglegar fasteignaauglýsingar fyrir Facebook og Instagram á nokkrum mínútum, alltaf með merki og litum stofunnar. Stofan greiðir uppsetningu einu sinni og svo fast mánaðargjald fyrir hvern fasteignasala.

Gerðu eins margar auglýsingar og þú vilt. Verðið breytist ekki.

Nágranninn: brosandi maður í lopapeysu með gula húfu hallar sér fram á girðingu

Verðið er í tveimur hlutum

Uppsetningin greiðir fyrir vinnuna við að laga Nágranna að stofunni. Áskriftin greiðir fyrir notkunina, sem er ótakmörkuð.

Uppsetning

49.000kr.

greitt einu sinni fyrir hverja fasteignasölu

Ekki á hvern fasteignasala.

  • Sniðmát stofunnar sett upp út frá merki hennar og litum
  • Réttar stærðir fyrir hvern miðil á Facebook og Instagram
  • Nýir fasteignasalar bætast við síðar án nýs uppsetningargjalds

Áskrift

Greiðsla áskriftar

9.900kr.

á mánuði fyrir fyrsta fasteignasala

Viðbótarnotendur: 9.900 kr. á mánuði hver

Greiddu árlega og sparaðu 19.800 kr. á ári.

  • Ótakmarkaður fjöldi auglýsinga
  • Merki og litir stofunnar réttir í hverri auglýsingu, sama hver gerir hana
  • Tengiliður sem sér um Meta-auglýsingakerfið ef eitthvað kemur upp

Öll verð eru án virðisaukaskatts.

Reiknaðu dæmið fyrir stofuna þína

Áskriftin á að kosta minna en tíminn sem fasteignasalar eyða í auglýsingagerð í dag. Settu inn tölur stofunnar og sjáðu hvort það stenst.

Kostnaður stofunnar

Greiðsla áskriftar
Uppsetning, eitt skipti
49.000 kr.
Áskrift, 5 fasteignasalar
49.500 kr. á mánuði
Fyrsta árið samtals
643.000 kr.

Með árlegri greiðslu yrði fyrsta árið 544.000 kr.

Hvenær borgar áskriftin sig?

Tölurnar í reitunum eru dæmi. Settu inn þínar eigin.

kr.

Áskriftin borgar sig ef Nágranni sparar hverjum fasteignasala meira en

59 mínútur á mánuði

Miðað við 8 auglýsingar á mánuði þarf hver auglýsing að spara um 7 mínútur.

Uppsetningargjaldið er ekki tekið með í þennan reikning. Það greiðist einu sinni.

Svona fer uppsetningin fram

  1. Þú sendir merkið og litina

    Merki stofunnar og litirnir sem hún notar eru grunnurinn að öllu sem Nágranni býr til.

  2. Við setjum upp sniðmátin

    Sniðmátin fá réttar stærðir fyrir hvern miðil og merki og liti stofunnar. Þau riðlast ekki með tímanum eins og heimatilbúin sniðmát gera.

  3. Fasteignasalarnir byrja

    Hver fasteignasali býr til auglýsingu á nokkrum mínútum, eins oft og hann þarf.

Til söluDæmigata 12
1:1
Til söluDæmigata 12
4:5
Til söluDæmigata 12
9:16
Sama auglýsingin í réttri stærð fyrir hvern miðil, með merki og lit stofunnar.

Manneskja tekur við þegar Meta stríðir þér

Auglýsingakerfi Meta getur verið óútreiknanlegt. Ef eitthvað kemur upp þar tekur tengiliður hjá Nágranna við málinu: manneskja sem þekkir kerfið og sér um það fyrir stofuna.

Spurningar um verðið

Finnurðu ekki svarið? Sendu línu á hallo@nagranni.is.

Eru auglýsingarnar virkilega ótakmarkaðar?

Já. Mánaðargjaldið er það sama hvort sem fasteignasali gerir þrjár auglýsingar í mánuðinum eða þrjátíu.

Af hverju er uppsetningargjald?

Áður en fyrsta auglýsingin verður til setjum við upp sniðmát stofunnar út frá merki hennar og litum og tryggjum að hver stærð birtist rétt. Sú vinna er unnin einu sinni fyrir stofuna, ekki fyrir hvern fasteignasala.

Hvað ef ég bæti við fasteignasala síðar?

Hann bætist við áskriftina á sama mánaðarverði. Uppsetningargjaldið greiðist ekki aftur.

Hvernig virkar árleg greiðsla?

Ársáskrift er greidd fyrirfram fyrir tólf mánuði. Fyrir hvern fasteignasala eru það 99.000 kr. á ári fyrir fyrsta fasteignasala og 99.000 kr. fyrir hvern viðbótarnotanda.

Þarf einhver á stofunni að kunna á hönnunarforrit?

Nei. Sniðmátin eru sett upp fyrir stofuna, svo enginn þarf að dútla við hönnun eða stærðir.

Er virðisaukaskattur innifalinn?

Nei. Öll verð á síðunni eru án virðisaukaskatts.

Spjöllum yfir girðinguna

Bókaðu kynningu og við sýnum þér hvernig auglýsing verður til í Nágranna. Svo reiknum við saman hvað þetta kostar fyrir stofuna þína.